Psalms 115

1Gef eigi oss, Drottinn, eigi oss, heldur þínu nafni dýrðina sakir miskunnar þinnar og trúfesti. 2Hví eiga heiðingjarnir að segja: ,,Hvar er Guð þeirra?`` 3En vor Guð er í himninum, allt sem honum þóknast, það gjörir hann. 4Skurðgoð þeirra eru silfur og gull, handaverk manna. 5Þau hafa munn, en tala ekki, augu, en sjá ekki, 6þau hafa eyru, en heyra ekki, nef, en finna engan þef. 7Þau hafa hendur, en þreifa ekki, fætur, en ganga ekki, þau tala eigi með barka sínum. 8Eins og þau eru, verða smiðir þeirra, allir þeir er á þau treysta. 9En Ísrael treystir Drottni, hann er hjálp þeirra og skjöldur. 10Arons ætt treystir Drottni, hann er hjálp þeirra og skjöldur. 11Þeir sem óttast Drottin treysta Drottni, hann er hjálp þeirra og skjöldur. 12Drottinn minnist vor, hann mun blessa, hann mun blessa Ísraels ætt, hann mun blessa Arons ætt, 13hann mun blessa þá er óttast Drottin, yngri sem eldri. 14Drottinn mun fjölga yður, sjálfum yður og börnum yðar. 15Þér eruð blessaðir af Drottni, skapara himins og jarðar. 16Himinninn er himinn Drottins, en jörðina hefir hann gefið mannanna börnum. 17Eigi lofa andaðir menn Drottin, né heldur neinn sá, sem hniginn er í dauðaþögn, 18en vér viljum lofa Drottin, héðan í frá og að eilífu. Halelúja.
Copyright information for Icelandic